20 nóvember 2006

Hæhæ!

Jiii... hvað ég er farin að hlakka til jólanna. Sérstaklega þegar öllum þessum snjó byrjaði að kyngja niður:) Gaman, gaman. Ég meira að segja dreif mig út í gær til þess að fara að moka, finnst alveg nauðsynlegt að drífa sig út í snjóinn eins og yngri kynslóðin. En í sambandi við jólagjafalistann, þá vil ég í rauninni bara hvað sem er. Ef einhver er aftur á móti í vandræðum, þá til þess að nefna eitthvað er ég til í t.d. nýtt veski sem er svona í stærra laginu (er alltaf með svo mikið dót með mér), nýjan trefil og húfu (alltaf gott að hafa í snjónum), og svo er ég opin fyrir öllu...

Kveð að sinni - ekkert stress og veriði bless
Svava Jóhanna

1 Comments:

At 23 nóvember, 2006 19:59, Blogger prinsessan said...

ok hugsanlega besti listinn hingað til;)

 

Skrifa ummæli

<< Home