25 desember 2006

JÓLA JÓL OG GLEÐILEG JÓL!!!

Hvað segið þið gott? Er búið að borða yfir sig...?? Ég ákvað bara að vera sú fyrsta sem skrifar hér inn...

Krut gaf mér:
GEGGJAÐA eyrnalokka ÚR GULLI :D
Æðislegann salt og piparstauk hehe algerar geimverur
Þvílíkt flott armband :) sem ég var með á mér í gær

Í vinkonu pakkanum (sem var líka frá krut):
Fékk ég kósí svartann og flottan trefil
aðra mjög GULLfallega eyrnalokka :):) ekkert smá ánægð með alltsaman

JÓHANNA gaf mér:
Striga til að mála á og olíuliti og pensla :D takk æðislega fyrir mig :D fallega hugsað dúllan mín!

Svo svona til að hlaupa yfir aðrar gjafir sem ég fékk:
Harðann disk (flakkara) frá mútt og pabbs
rúmteppi frá ömmu Kötlu og afa
Vínskáp frá ömmu Ernu og afa
2 karöflur fyrir vín eða vatn
2 bækur ÆÐI!
náttföt
eyrnalokka og hálsmen
olíu með glimmeri... úúúfff flott!

Frá sveinka fékk ég (í skóinn)
Hálsmen og baðbombu... ahhh :)
Vonandi áttuð þið ljúfann aðfangadag og hafið það sem best yfir hátíðirnar :):):)

knúús frá mér!!!

01 desember 2006

Gjafalistinn minn!!!
Ekki mikið sem mér dettur í hug en hér er smá byrjun....
  • Svartan bol (stórann og góðann)
  • Groddaralegt skart
  • Flott rúmföt (fæ reyndar frá ömmu svo það er kanski óþarfi að fá mörg sett)

bæti inn ef ég man eftir fleiru annars treysti ég ykkur mínu góðu vinkonur til að gefa mér e-ð fallegt og hugulsamt og það er hugurinn sem gildir.

Sælla er að gefa en þiggja :0)