22 nóvember 2007

Hæhæ ég ákvað að setja inn hér til hliðar verð á gjöfum, þar sem allavega ég virðist aldrei muna hvað það var mikið síðast osfrv. En við erum nottla ekkert búnar að ræða jólagjafaverðið, en ég skaut bara á 2500 en breyti því bara ef þið eruð ósáttar.

Listinn minn:
Eyrnalokka, skran, en verðið að spyrja hvort að sé nikkel... sko get ekki notað Ice in a bucket eða 4 dot (þarna í hagkaup man ekki alveg hvað það heitir) en skarthúsið, Isis ofl er bara í fínu lagi.
Peysa, veit að það er mjööög ólíklegt að fá peysu á svona verði...
Hárskraut, sko það verður að vera TÖFFARALEGT - ekki væmið!
Baðhöfuðpúða, fæst held ég í Bodyshop og líka í Tiger
Bók, eiginlega sama hvað í flokki spennusagna - góðir höfundar: Yrsa Sigurðar, Óttar M. Norðfjörð og höfundur shopaholic bókanna
Pier, Vila, Vero Moda eru rosalega töffaralegar búðir
ég bæti kannski inn einhverju fleira, og þá helst bók, en mér langar rosalega í bók... á bara eftir að sjá hvað er á markaðinum.

Okí dókí

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home